|
Heim
|
|
mánudagur, 30 ágúst 2010 |
|

Símasamband til sjós...
Síminn hefur byggt upp langdrægt 3G kerfi meðfram ströndum landsins. Með þessu nýja kerfi gefst sjómönnum kostur á háhraða nettengingu, sambærilegri við þá sem notendum í landi stendur til boða. Nýja kerfið býr einnig yfir fullkomnu talsambandi þannig að dæmi eru um að skip hafi verið í góð tal- og gagnasambandi í yfir 100 km fjarlægð frá ströndum landsins.
Kynntu þér útbreiðslu 3G dreifikerfis Símans... smelltu hér Langdræga 3G kerfið er lokað kerfi sem krefst sérstakrar GSM áskriftar, þ.e. „Sjó Samband“. Slík áskrift veitir ekki bara aðgang að langdræga 3G kerfinu, heldur einnig að öllum 2G og 3G sendum Símans, hvar sem er á landinu. Þar sem Síminn er með langstærsta dreifikerfið þá er notendum með Sjó Samband tryggður aðgangur að bestu GSM og 3G þjónustu sem völ er á. Hvernig panta ég Sjó Samband
Til þess að sjómenn geti nýtt þjónustuna sem best býður Altor ehf í samstarfi við Radíómiðun, allan þann búnað sem nauðsynlegur er fyrir skip og báta. Við hjá Altor ehf getum veitt notendum faglega ráðgjöf um val á búnaði og virkni hans um borð. Mikilvægt er að vandað sé til alls frágangs um borð svo eiginleikar kerfisins njóti sín sem best.
Landræga 3G kerfinu er ætlað að leysa NMT kerfið af hólmi, en því verður lokað 1. september 2010. |
|
Lesa meira...
|
| | |
|
|